Hátíðartónleikar Rótarý
laugardagur, 1. mars 2025 17:00-19:00, Salurinn Kópavogur
Vefsíða: https://tix.is/event/18967/hatidar-og-styrktartonleikar-rotary
Skipuleggjendur:
- Jón Karl Ólafsson
- Stefán Baldursson
- Kjartan Óskarsson
Hátíðartónleikar Rótarý fara fram í Salnum í Kópavogi þann 1. mars n.k. Dagskráin hefst klukkan 17:00 og fram munu koma styrkþegar Tónlistarsjóðs á þessu ári, auk annarra frábærra listamanna. Gert er ráð fyrir léttum veitingum í hléi.
Allur ágóði af tónleikum rennur beint til Tónlistarsjóðs og mun fara beint til að styrkja áframhaldandi styrki til efnilegs tónlistarfólks. Rótarýfélagar eru hvattir til að mæta og skrá sig. Viðburður telst sem fundur og kemur fram sem mæting fyrir þá sem skrá sig hér á viðburð.
Starf Tónlistarsjóðs byggir á framlagi okkar og því er mjög mikilvægt, að sem flestir Rótarýfélagar komi og taki helst með sér gesti. Pláss er fyrir um 400 gesti á tónleikum.
Tónlistartöfrar
Frábær tónleikasalur
Salurinn í Kópavogi
Staðsetning miðsvæðis
Styrkþegar í ár eru þau Kristín Ýr Jónsdóttir flautuleikari og Hjörtur Páli Eggertsson sellóleikari og hljómsveitarstjóri. Þau munu koma fram á tónleikunum auk Bryndísar Guðjónsdóttur sópransöngkona sem hlaut styrk 2021 og Guðbjartar Hákonarsonar fiðluleikar, sem fékk styrk 2023. Fleiri listamenn mun skemmta okkur og einnig verða veitingar í boði fyrir tónleikagesti. Við treystum á Rótarýfélaga og hlökkum til að sjá ykkur.
Skráning
Skráningarfrestur er liðinn